Dáið er alt án drauma

Útgefandi: VH
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2005 990 kr.
spinner

Dáið er alt án drauma

Útgefandi : VH

990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2005 990 kr.
spinner

Um bókina

Frá unglingsaldri orti Halldór Laxness kvæði af ýmsu tagi, angurvær og skrýtin, tregafull og harmþrungin, galgopaleg og fyndin. Öll eru þau minnisstæð og við mörg þeirra hafa verið samin vinsæl lög.

Þessi bók er safn margra þekktustu kvæða Halldórs og þeirra sem orðið hafa þjóðinni hjartfólgnust. Í henni eru þrjátíu og fimm kvæði, flest í fullri lengd en fáein stytt. Kvæðin eru hér birt eins og Halldór gekk frá þeim í 5. útgáfu Kvæðakvers síns árið 1992.

Tengdar bækur