Víkingar og væringjar

Útgefandi: Urður
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2020 173 3.390 kr.
spinner

Víkingar og væringjar

Útgefandi : Urður

3.390 kr.

Víkingar og væringjar
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2020 173 3.390 kr.
spinner

Um bókina

Víkingaöldin er eitt áhugaverðasta og merkasta tímabilið í gjörvallri sögu Norðurlanda. Hún stóð frá því skömmu fyrir aldamótin 800 og fram á síðari hluta elleftu aldar. Á
víkingaöld urðu Norðurlandabúar hlutgengir Evrópumenn. Þeir fóru í víkingaferðir til Bretlandseyja, Frakklands, suður í Miðjarðarhaf, austur til Rússlands og Svartahafs, fundu og námu ný lönd í Norður-Atlantshafi Færeyjar, Ísland og Grænland – og sigldu allt vestur til Ameríku. Margir Norðurlandabúar,þeirra á meðal nokkrir Íslendingar, gengu í þjónustu keisarans í Miklagarði (Konstantínópel, nú Istanbúl), voru hermenn hans og lífverðir. Þeir voru nefndir Væringjar.

Í þessari fróðlegu og læsilegu bók rekur Jón Þ. Þór meginþætti í sögu víkingaaldar, lýsir herferðum víkinganna, landkönnun og landafundum, kaupferðum og myndun kaupstaða og konungsríkja á Norðurlöndum.

Tengdar bækur