Varnarlaus
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 3.990 kr. | ||
Innbundin | 2022 | 337 | 3.990 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 3.690 kr. |
Varnarlaus
3.690 kr. – 3.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 3.990 kr. | ||
Innbundin | 2022 | 337 | 3.990 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 3.690 kr. |
Um bókina
Adam er rétt mættur í vinnuna á sálfræðistofunni Sáló þegar barni er rænt úr afgreiðslunni. Síðar sama morgun vélar fyrrverandi eiginkona hans, rannsóknarlögreglukonan Soffía, hann til að taka að sér mál sem Adam er viss um að stangast alvarlega á við siðareglur stéttarinnar. Til að flækja lífið enn frekar haga aldraðir foreldrar hans í Englandi sér stórundarlega og leyndarmálið um Jennýju, hliðarsjálfið sem lakkar á sér neglurnar þegar enginn sér til, er sífellt á barmi þess að komast upp.
Jónína Leósdóttir hefur getið sér gott orð fyrir bækur sínar, meðal annars glæpasögurnar um eftirlaunakonuna Eddu á Birkimelnum. Varnarlaus er tuttugasta bók hennar og önnur sagan um Adam og Soffíu, en sú fyrsta, Launsátur, hlaut frábærar viðtökur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 18 mínútur að lengd. Birna Pétursdóttir les.
Hér má hlusta á brot úr hljóðbókinni:
3 umsagnir um Varnarlaus
embla –
„Jónína er snillingur í að gera ýtnar íslenskar konur að persónum í bókum og gera þær áhugaverðar.“
Steingerður Steinarsdóttir
embla –
„Hún [Jónína] er einstaklega lunkin við að setja upp margþættann söguþráð og ná að flétta hann vel saman án þess að eitthvað sé ruglingslegt eða endasleppt. Sagan er áhugaverð og spennandi, klassísk sakamálasaga en þó ekki. … Varnarlaus er sakamálasaga sem gefur öðrum slíkum sögum ekkert eftir í spennu né frumleika. Frábær bók í lesturinn á aðfangadagskvöld með konfektinu og jólaölinu.“
Jana Hjörvar / Lestrarklefinn
embla –
„Sagan rennur vel og hvergi er dauður punktur.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið