Uppljómanir & Árstíð í helvíti
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2016 | 155 | 3.890 kr. |
Uppljómanir & Árstíð í helvíti
3.890 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2016 | 155 | 3.890 kr. |
Um bókina
„Arthur Rimbaud er einn mikilvægasti vígslumeistari vestrænnar ljóðlistar.“ Þetta segir Sigurður Pálsson skáld í formála sínum að þessu riti þar sem þeir Sölvi Björn Sigurðsson birta þýðingar sínar á ljóðum Rimbauds – en Sölvi ritar ýtarlegan eftirmála um líf og störf skáldsins.
Rimbaud (1854–1891) ruddist með látum fram á sjónarsvið franskrar ljóðlistar aðeins sextán ára gamall en hafði byrjað að yrkja barn að aldri og strax náð meistaratökum á skáldskaparlistinni. Hann hætti að yrkja upp úr tvítugu og hvarf af sjónarsviðinu – til Arabíuskagans – og æ síðan hefur nafn hans verið sveipað dularfullum ævintýraljóma. Fá skáld höfðu meiri áhrif á þróun ljóðlistar á síðustu öld.
Í þessari bók er safnað saman frægustu ljóðaflokkum Rimbauds og hafa þýðendur skipt með sér verkum þannig að Sigurður Pálsson þýðir prósaljóðasafnið Uppljómanir en Sölvi Björn Árstíð í helvíti og ýmis ljóð í bundnu máli.
Tilnefnd til Íslensku þýðingaverðlaunanna 2016.
1 umsögn um Uppljómanir & Árstíð í helvíti
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Sigurði Pálssyni og Sölva Birni Sigurðssyni tekst með vönduðum og hugvitssamlegum þýðingum einkar vel að viðhalda sköpunarkrafti texta sem endurnýjar sig í hvert sinn sem hann er lesinn.“
Umsögn dómnefndar Íslensku þýðingaverðlaunanna