Þrautgóðir á raunastund 1950-1975

Útgefandi: Bjartur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 454 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2018 1.490 kr.
spinner

Þrautgóðir á raunastund 1950-1975

Útgefandi : Bjartur

1.490 kr.3.490 kr.

Þrautgóðir á raunastund 1950-1975
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 454 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2018 1.490 kr.
spinner

Um bókina

Á árunum 1950–1975 unnu björgunarmenn við strendur Íslands mörg frækileg afrek – en engu að síður fórst fjöldi sjómanna á þessum árum. Hér er fjallað um 58 hrikaleg sjóslys frá þessu tímabili.

Í bókinni segir meðal annars frá því er Grindvíkingar björguðu með ævintýralegum hætti mönnum af breska togaranum Preston North End og þeirri hetjudáð þegar skipbrotsmönnum af togaranum Agli rauða var bjargað í aftakaveðri undir Grænuhlíð. Þá er í bókinni frásögn af baráttu áhafnar Þorkels mána upp á líf og dauða við að halda skipinu ofansjávar í Nýfundnalandsveðrinu fræga þegar ísing varð þess valdandi að 30 íslenskir sjómenn fórust fórust og fjallað er ítarlega um þá ógnaratburði er áttu sér stað snemma árs árið 1968.

Frásagnirnar eru margar hverjar í senn skelfilegar og stórbrotnar. Sjómenn og björgunarmenn þurftu að berjast við óblíð náttuúruöflin eins og þau gerast illvígust með búnaði sem í dag þykir æði frumstæður.

Steinar J. Lúðvíksson er höfundur stórvirkisins Þrautgóðir á raunastund sem á sínum tíma kom út í nítján bindum og naut fádæma vinsælda. Hér hefur hann safnað saman einstökum frásögnum úr því mikla verki.

Tengdar bækur