Tímamót

Útgefandi: Skrudda
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 280 5.190 kr.
spinner

Tímamót

Útgefandi : Skrudda

5.190 kr.

Tímamót
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 280 5.190 kr.
spinner

Um bókina

Sögusvið bókarinnar er Ísland um aldamótin 1900. Þorsteinn samdi söguna á efstu æviárum sínum, sennilega eftir að hann flutti og birti útvarpsfyrirlestra sína 1936 um stjórnmálasögu Íslands 1896-1918.

Eins og málari sem telur tryggast að bera lit á hús og veggi í tveimur umferðum svo málningin endist betur og áferðin verði jafnari virðist Þorsteinn hafa talið aldamótaárin og umhleypingana sem fylgdu þeim mikilvægari en svo að þurr sagnfræði dygði ein sér til að gera þessum tímamótum viðhlítandi skil.

Sé þessi ágiskun rétt kaus hann að tvísegja söguna, fyrst af þröngum sjónarhóli sagnfræðingsins og annálaritarans og síðan aftur af víðfeðmum og frjálsum útsýnishóli skáldsins til að freista þess að mála fjölbreyttari og skarpari myndir af aldarfarinu, hugmyndaheimi fólksins, ástandi landsins og stjórnmálabaráttunni.

Tengdar bækur