Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Tælandi fegurð sögunnar
Útgefandi: MM
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kiljur | 1998 | 335 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kiljur | 1998 | 335 kr. |
Um bókina
“Undir kvöld hvelfist himinninn hærra og tekur á sig sína raunverulegu mynd. Hann verður hvolfþak og hvelfing. Breiðir sig yfir herstjórnarhúsið, hermannaskálana og vegabréfaskoðunina með einkennilega sjálfsögðum og ógnandi hætti. Sá sem er staddur undir hvelfingu á sér ekki undankomu auðið”
Þanni hefst þessi saga sem lýsir á áhrifamikinn hátt andrúmsloftinu í Eystrasaltsríkjunum þegar þau lönd voru undir járnhæl Sovétríkjanna. Frásagnaraðferð sögunnar er sérstök, brugðið er upp sterkum svipmyndum af mannlífinu í þessum ríkjum, jafnhliða því sem einni fjölskyldu er fylgt í gegnum sviptingar áranna í kringum 1968 og lýst áhrifum þeirrar “byltingar” á ungt fólk í austantjaldslöndunum.