Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2004 | 281 | 2.065 kr. |
Um bókina
Fangelsuð í eyðimörkinni í tuttugu ár
Fimm ára gömul var Malika, dóttir Oufkirs hershöfðingja, tekin inn í hirð marokkósku konungsfjölskyldunnar og lifði þar prinsessulífi. En þegar hún var komin á unglingsaldur var faðir hennar tekinn af lífi fyrir þátttöku í samsæri um að ráða konunginn af dögum. Í kjölfarið voru Malika, móðir hennar og systkini fangelsuð í eyðimörkinni og við tók tveggja áratuga lífsbarátta við skelfilegar aðstæður. Svipt frelsinu segir frá ótrúlegum mannraunum og einbeittum ásetningi Maliku og fjölskyldu hennar um að öðlast frelsið á ný.
Þetta er sönn átakanleg saga um sjálfsbjargarhvöt og óbilandi hugrekki. Viðtal birtist við Maliku Oufkir í sjónvarpsþættinum 60 mínútum sem vakti mikla athygli.
Guðrún Finnbogadóttir þýddi bókina.
[Domar]
„Átakanleg, sönn saga um kjark
og seiglu við yfirþyrmandi aðstæður
- [Oufkir] tókst á við skelfileg örlög
með fádæma hugrekki og kímnigáfu.“
Oprah Book Club
„Lesandinn fyllist lotningu í garð
Maliku Oufkir sem segir sögu sína
á einfaldan en áhrifaríkan hátt.“
The Washington Post Book World
„Frábær blanda ævintýris,
hrollvekju og spennusögu.“
The Daily Telegraph
„ógnvekjandi, spennandi og grátleg - Hér er verið að fjalla um brot gegn manneskjum sem ekkert hafa til saka unnið. Forvitnilegastur er þó kaflinn sem lýsir lífinu innan konungshallarinnar þar sem fjörutíu konur búa saman í kvennabúri konungs“
Friðrikka Benónýs / Morgunblaðið
[/Domar]