Sveitin í sálinni

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 312 4.290 kr.
spinner

Sveitin í sálinni

Útgefandi : JPV

4.290 kr.

Sveitin í sálinni
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 312 4.290 kr.
spinner

Um bókina

Sveitin í sálinni fjallar um horfinn heim í Reykjavík – heim sem var lifandi veruleiki þúsunda Reykvíkinga langt fram eftir 20. öld. Margir bæjarbúar voru aðfluttir úr sveit og höfðu með sér á mölina viðhorf og venjur úr átthögunum. Ýmsum þeirra þótti sjálfsagt að halda áfram dálitlum búskap en flestir létu sér nægja að stunda matjurtarækt, þar sem kartöflur voru í öndvegi. Smám saman höfðu steinsteypa og malbik þó betur; skepnuhald og matjurtarækt í stórum stíl létu undan síga og liðu loks undir lok.

Rakið er í glöggum texta og rúmlega 550 forvitnilegum ljósmyndum hvernig ásýnd Reykjavíkur tók stakkaskiptum á 20. öld. Þetta er fróðleg og skemmtileg saga sem varpar ljósi á vöxt og þróun höfuðborgarinnar þar sem saman fléttuðust fornir hættir og ný viðhorf.

Eggert Þór Bernharðsson (f. 1958) er sagnfræðingur og prófessor í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Eftir hann er meðal annars Saga Reykjavíkur 1940–1990 í tveimur bindum og Undir bárujárnsboga, braggalíf í Reykjavík 1940–1970 en bæði verkin voru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

„Stórkostleg bók!“
Egill Helgason / Kiljan

„Ég hafði alveg frábærlega gaman af því að lesa þessa bók ... Mjög skemmtilegar hugleiðingar ... Skilmerkilegur og góður texti auk korta og mynda sem maður getur legið yfir og skoðað fram og til baka ... Eggert vann stórvirki.“
Sigurður G. Valgeirsson / Kiljan

„Myndirnar eru mjög sterkur þáttur ... maður gengur nánast inn í þær.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan

„... skemmtilega fram sett, ekkert slegið af fræðilegum kröfum en um leið er hún mjög aðgengileg og margbrotin …?
Jórunn Sigurðardóttir / Síðdegisútvarpið

„Yndisleg bók ... hægt að skoða aftur og aftur ... Þarna er mitt fólk og þitt; ég spái því að hver einasti maður sem á sér einhverja sögu í þessum bæ hafi gaman af þessari myndarlegu og fallegu bók.“

Tengdar bækur