Stafsetningarorðabókin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 736 | 7.495 kr. | ||
Mjúk spjöld | 2008 | 736 | 4.890 kr. |
Stafsetningarorðabókin
4.890 kr. – 7.495 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 736 | 7.495 kr. | ||
Mjúk spjöld | 2008 | 736 | 4.890 kr. |
Um bókina
Stafsetningarorðabókin er yfirgripsmesta verk sinnar tegundar sem út hefur komið á íslensku. Bókin er 736 bls. og efnið í þremur dálkum á síðu. Stafsetningarorðabókin er hin opinbera réttritunarorðabók um íslensku. Bókin var samin í Íslenskri málstöð í umboði Íslenskrar málnefndar. Ritstjóri verksins er Dóra Hafsteinsdóttir. Bókin er gefin út í samvinnu við Íslenska málnefnd.
Í bókinni, sem er 736 bls., eru ríflega 65.000 flettiorð og að auki um 8.000 undirflettiorð
Í bókinni er allur almennur orðaforði málsins, auk fjölda mannanafna, örnefna, ríkja- og þjóðaheita og orðaforða úr helstu fræðigreinum.
Í bókinni eru sýndar beygingar, notkunardæmi, ýmis algeng orðatiltæki og rétt orðnotkun. Ýtarlegar ritreglur eru í bókinni.
Stafsetningarorðabókin bætir úr brýnni þörf. Bókin leitast við að svara sem flestum spurningum sem almennir málnotendur spyrja um og varða staf-setningu, beygingu og meðferð orða.
Í Stafsetningarorðabókinni eru alls um 73.000 orð. Jafnframt eru hér birtar ýtarlegar íslenskar ritreglur, settar fram á aðgengilegan hátt með fjölda dæma. Ritreglurnar byggjast á auglýsingum menntamálaráðuneytis um stafsetningu og greinarmerkjasetningu.
Stafsetningarorðabókin geymir allan algengan íslenskan orðaforða og að auki fjöldamörg mannanöfn og örnefni, einnig öll ríkjaheiti og þjóðernisorð og síðast en ekki síst mikinn orðaforða úr helstu fræðigreinum. Notkunardæmi fylgja fjölmörgum flettiorðum til glöggvunar og sýnd eru algeng orðasambönd og rétt orðnotkun.