Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Spjótalög á spegil
Útgefandi: Iðunn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1982 | 47 | 1.245 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1982 | 47 | 1.245 kr. |
Um bókina
Við köstum okkur
í ævinnar sollna flaum
eltandi tímans veltihjól
sem ráðum og rökum sundra;
sofnum hrygg,
deyjum í ókunnan draum
og rísum upp í regni og sól
endurborin til undra.
Spjótalög á spegil – svo nefnist áttunda ljóðabók Þorsteins frá Hamri. Hér þótti kveða við nýjan tón hjá skáldinu og ljóðin vera ef til vill persónulegri en fyrr. Heilt yfir var kveðskapurinn enn einn vottur þess hversu djúpum rótum skáldskapur Þorsteins stóð. Málfarið, auðugt, hnitmiðað og blœbrigðaríkt, sótti styrk sinn í gamlar menntir sem skáldinu tekst til æ meiri fullnustu að hagnýta í eigin þágu.