Spiritus fossis

Útgefandi: Frá hvirfl
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2015 144 3.790 kr.
spinner

Spiritus fossis

Útgefandi : Frá hvirfl

3.790 kr.

Spirtius fossis
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2015 144 3.790 kr.
spinner

Um bókina

Á fallegum vordegi vaknar Gunnar á Hlíðarenda við að hægri umferð hefur verið tekin upp á Íslandi.

Þennan dag heldur hann út í lífið og fær sumarvinnu í verksmiðjunni á Ullarfossi þar sem allt snýst um ull. Ýmsar áhugaverðar persónur verða þar á vegi söguhetjunnar: Arinbjörn, sem starfrækir Ullarbíó, Gunnhildur konungamóðir, Sigurður forstjóri, sem stundar miðilstarfsemi og framleiðir töfralyfið Spiritus fossis og síðast en ekki síst ung stúlka sem Gunnar hrífst af. En hvort heitir hún Gerða eða Hallgerður?

Bjarki Bjarnason kemur víða við í þessari skáldsögu sinni sem gerist sumarið 1968 þegar ný kynslóð er að hasla sér völl með róttæk viðhorf í fatatísku, tónlist og stjórnmálum. Bjarki gerir tíðarandanum afar góð skil með fjörlegum og frumlegum stíl, myndum og óvæntum söguþræði sem kemur lesandanum sífellt í opna skjöldu.

Tengdar bækur