Snædrottningin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók | 2020 | App | 1.790 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók | 2020 | App | 1.790 kr. |
Um bókina
Fjölkunnugur púki smíðar hræðilegan spéspegil, sem hefur þá náttúru, að gera allt það sem gott er og fallegt afskræmt og ljótt. Í ljótum púkaleik brotnar síðan spegillinn og brotin þyrlast um allan heim og gera illt hvar sem þau lenda.
Tvö af glerbrotunum smjúga inn í hjarta drengsins Karls, sem áður var ljúfur og góður piltur. Leiksystir hans, Helga, skilur ekkert í umbreytingunni og verður afskaplega sorgmædd. Vetrardag nokkurn bindur Karl sleðann sinn aftan í stóran og glæsilegan sleða. Á honum reynist Snædrottningin sitja, og kyssir hún drenginn kuldakossum svo hann gleymir öllu sem honum var áður kært. Helga litla leggur af stað út í heiminni í leit að vini sínum, en á leiðinni eru ýmsir hrakningar.
Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er klukkustund og 24 mínútur að lengd. Jóhann Sigurðarson les.