Sænsk gúmmístígvél

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 438 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2018 990 kr.
spinner

Sænsk gúmmístígvél

Útgefandi : MM

990 kr.3.490 kr.

Sænsk gúmmístígvél - Henning Mankell
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 438 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2018 990 kr.
spinner

Um bókina

Haustnótt eina vaknar Fredrik Welin upp við að húsið hans stendur í ljósum logum. Hann kemst undan við illan leik en allt er brunnið, horfið: bernskuheimilið, minningarnar og ítölsku skórnir hans. Hann stendur við rústirnar í tveimur vinstrifótarstígvélum og veltir fyrir sér hvort hann eigi nokkuð að ráðast í endurbyggingu, sjötugur einbúi. Fyrir hvern? Fyrir dótturina dularfullu, sem hann vissi fyrst af þegar hún var orðin rígfullorðin?

Í ljós kemur að brennuvargur hefur verið að verki og Fredrik liggur sjálfur undir grun. Hann heillast af blaðakonu sem hefur áhuga á málinu – en kannski ekki á honum sjálfum. Dóttirin lendir í vanda og kallar á hjálp. Og biðin eftir nýjum gúmmístígvélum verður löng og erfið.

Henning Mankell (1948–2015) var einn helsti glæpasagnahöfundur Norðurlanda, þekktastur fyrir bókaflokk sinn um Kurt
Wallander, en hann skrifaði einnig fjölda annarra bóka. Sænsk gúmmístígvél, síðasta bók Mankells, er sjálfstætt framhald bókarinnar Ítalskir skór og gerist átta árum seinna; saga um ást og samskipti, elli og eftirsjá, lífið og dauðann í sínum margbreytilegu myndum.

2 umsagnir um Sænsk gúmmístígvél

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur