Örlög Íslands
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kiljur | 55 | 1.810 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kiljur | 55 | 1.810 kr. |
Um bókina
Hver er skýringin á stöðu Íslands á alþjóðavettvangi? Bók Benedikts Gröndal um alþjóðamál kom út hjá Vöku-Helgafelli árið 1991.
Benedikt Gröndal (7. júlí 1924 – 20. júlí 2010) var forsætisráðherra Íslands (fyrir Alþýðuflokkinn) 15. október 1979 til 8. febrúar 1980. Hann var utanríkisráðherra 1978-1980 og alþingismaður 1956-1982.
Benedikt var sonur Sigurðar Gröndal yfirkennara í Reykjavík og konu hans Mikkelínu Maríu Sveinsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1943, BA-prófi í sagnfræði frá Harvard-háskóla 1946. Með námi og að því loknu var hann blaðamaður á Alþýðublaðinu, síðan ritstjóri Samvinnunnar 1951-1958 og ritstjóri Alþýðublaðsins 1959-1969.
Benedikt varð landskjörinn þingmaður Borgfirðinga fyrir Alþýðuflokkinn 1956. Hann var síðan þingmaður Vesturlands 1959-1978 og þingmaður Reykvíkinga 1978-1982. Hann var formaður Alþýðuflokksins 1974-1980. Þegar hann lét af þingmennsku 1982 var hann skipaður sendiherra í Svíþjóð og starfaði hjá utanríkisþjónustunni til 1991. Hann sendi frá sér nokkrar bækur um stjórnmál, utanríkismál og sagnfræði.