Náhvít jörð

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 3.990 kr.
spinner
Rafbók 2021 1.990 kr.
spinner
Innbundin 2021 311 3.990 kr.
spinner

Náhvít jörð

Útgefandi : JPV

1.990 kr.3.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 3.990 kr.
spinner
Rafbók 2021 1.990 kr.
spinner
Innbundin 2021 311 3.990 kr.
spinner

Um bókina

Náhvít jörð er hrollvekjandi saga um glæpamenn sem svífast einskis og fórnarlömb mansals – þræla nútímans. Áður eru komnar út tvær vinsælar bækur um sömu persónur, Helköld sól og Blóðrauður sjór.

Á hvítum vetrarmorgni finnst yfirgefinn flutningagámur í Rauðhólum við Reykjavík. Þegar hann er opnaður blasir hryllingurinn við: fimm lífvana konur sem augljóslega hafa verið fluttar í þessum gámi yfir hafið. Hvernig getur svona lagað gerst og hverjir standa að baki þessari óhæfu?

Rannsóknarlögreglumennirnir Daníel og Helena mæta á vettvang og hefjast handa en á meðan sinnir Áróra, vinkona Daníels, öðru máli: Elín frænka hennar er í sambandi við rússneskan mann sem vill endilega að þau gifti sig en virðist hafa óhreint mjöl í pokahorninu …

Lilja Sigurðardóttir er einn vinsælasti spennusagnahöfundur landsins og bækur hennar hafa komið út víða erlendis. Hún hefur verið tilnefnd til breska Gullrýtingsins og í tvígang hlotið íslenska Blóðdropann og tilnefningu til norræna Glerlykilsins.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 32 mínútur að lengd. Elín Gunnarsdóttir les.

Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:

Tengdar bækur