Musteri lifandi steina

Útgefandi: Nordic
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2014 3.210 kr.
spinner

Musteri lifandi steina

Útgefandi : Nordic

3.210 kr.

Musteri lifandi steina
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2014 3.210 kr.
spinner

Um bókina

Loksins er komið út fræðirit um frímúrarareglurnar á Íslandi. Í bókinni er saga frímúrara rakin og starfi þeirra lýst í máli og myndum.
Á Íslandi eru tvær frímúrarareglur: Frímúrarareglan á Íslandi, karlaregla á kristnum grunni, og Íslandsdeild Alþjóða Sam-Frímúrarareglunnar Le Droit Humain, þar sem karlar og konur starfa saman á jafnréttisgrundvelli, borin er virðing fyrir öllum trúarbrögðum, en ekki krafist neinnar sérstakrar trúar.

Frímúrarar hafa löngum verið sveipaðir dul og því orðið uppspretta ýmissa misjafnra sagna og ranghugmynda. Á undanförnum áratugum hafa verið gefnar úr margar bækur um fræði frímúrara á ýmsum tungum, en hér birtist fyrsta bókin á íslensku um sögu frímúrara, uppruna, þróun, siðaathafnir, táknfræði og hugsjónir.
Musteri lifandi steina er fræðandi rit sem útskýrir margt í starfi frímúrara sem ekki hefur áður komið fyrir sjónir almennings á Íslandi. Bókina prýða fjölmargar myndir, m.a. frá báðum reglunum á Íslandi.

Tengdar bækur