Mórún – stigamenn í Styrskógum

Útgefandi: Sögur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 200 2.590 kr.
spinner

Mórún – stigamenn í Styrskógum

Útgefandi : Sögur

2.590 kr.

Mórún - Stigamenn í Styrskógum
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 200 2.590 kr.
spinner

Um bókina

Styrskógar eru gríðarlegt landflæmi þéttvaxið háum trjám og harðgerðum þyrnigróðri. Þar hefur illskeyttur hópur stigamanna ráðið lögum og lofum um hríð. Í hvert sinn sem þeir fremja rán hverfa þeir eins og hendi væri veifað en skjóta svo aftur upp kollinum á allt öðrum stað í skóginum skömmu síðar.

Fógeti erkifurstans er úrræðalaus. Ekkert virðist geta ráðið niðurlögum ræningjanna. En þá verða þeim á afdrifarík mistök. Þeir reyta Mórúnu Hróbjarts til reiði.

Stigamenn í Styrskógum er önnur bókin um Mórúnu Hróbjarts. Hún er sjálfstætt ævintýri, en þó beint framhald af Í skugga Skrattakolls, sem hlaut afbragðsgóðar viðtökur og einróma lof þegar hún kom út.

Atburðarásin er hröð og spennandi. Sagan því kjörin lesning fyrir alla unnendur hreinræktaðra fantasíubókmennta, ekki síst ungmenni.

Tengdar bækur