Mitt (ó)fullkomna líf
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 496 | 3.490 kr. |
Mitt (ó)fullkomna líf
3.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 496 | 3.490 kr. |
Um bókina
Kata Brenner lifir fullkomnu lífi. Eins og sjá má af Instagram-reikningnum hennar býr hún í London, starfar í auglýsingabransanum og ver frítíma sínum á smart kaffihúsum og dýrum veitingastöðum. Kannski fegrar hún lífið örlítið, kannski er vinnan ömurleg, yfirmaður hennar algjör martröð, herbergið sem hún leigir rúmur fermetri, samleigjendur hennar fávitar og maturinn sem hún borðar mestmegnis pakkasúpur og samlokur … en hver er ekki sekur um að nota smá filter á Instagram?
Þegar Kata svo missir vinnuna, mögulegt ástarsamband er slegið harkalega út af borðinu og hún neyðist til að flytja aftur á æskuheimili sitt í sveitinni renna á hana tvær grímur. Hversu lengi getur ung kona haldið fast í drauma sína þegar örlögin virðast staðráðin í að bregða stöðugt fyrir hana fæti?
Metsöluhöfundurinn Sophie Kinsella er rómuð fyrir stórskemmtilegar persónulýsingar og frábæra sagnagáfu. Mitt (ó)fullkomna líf er ljúfsár og bráðfyndin saga um háleit markmið, fjölskylduflækjur og rómantík en fyrst og fremst um óvænta vináttu sem vex af ólíklegustu fræjum.
Maríanna Clara Lúthersdóttir þýddi