Ljóð línu dans
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1994 | - | 1.450 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1994 | - | 1.450 kr. |
Um bókina
„Eldforn gyðingamálsháttur hljóðar svo : Þegar maðurinn reynir að hugsa, fer Guð að skellihlæja” Ég get vel ímyndað mér það. Þó held ég að honum þyki sérstaklega hlægileg sú grein mannlegrar viðleitni sem kölluð er ljóð og okkur finnst einstakur vitnisburður mannlegrar sérstöðu eða mennskunnar.
Maðurinn reynir nefnilega að hugsa eins og sá sem skapar þegar hann yrkir ljóð ; hann reynir að hugsa um ástina, um fögnuðinn, um harminn, um trúna. Þessir fjórir hornsteinar renna saman í órofa heild í huga mínum.
Ég get ómögulega lesið í sundur þessi grundvallaratriði ljóðlistarinnar eins og menn lesa sundur póst á pósthúsinu. Mér finnst þetta fernt : ástin, harmurinn , fögnuðurinn og trúin yfirleitt saman í blöndu í ljóðaskálinni.
Ég ætla að sýna ykkur nokkur ljóð þó ég viti það ofurvel að þegar maðurinn reynir að hugsa fer Guð að skellihlæja, en er ekki göfugra þegar öllu er á botninn hvolft að skemmta Guði en skrattanum?“
S.P.