Lifandi mál lifandi manna

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2020 415 4.890 kr.
spinner

Lifandi mál lifandi manna

Útgefandi : JPV

4.890 kr.

Lifandi mál lifandi manna
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2020 415 4.890 kr.
spinner

Um bókina

Þótt mikið hafi verið skrifað um ritstörf og ævi meistara Þórbergs Þórðarsonar er einn þáttur sem jafnan hefur orðið útundan en það er esperantotímabilið og áhugi Þórbergs á framgangi hlutlausrar alþjóðatungu. Esperanto var í huga hans það tæki sem gat bjargað menningu smáþjóðanna og um leið sameinað allar þjóðir heimsins í eitt ríki þar sem allir menn nytu réttlætis.

Hér er þessu tímabili gerð ítarleg skil og fjallað um fyrstu kynni Þórbergs af alþjóðamálinu, þýðingar hans og skrif á esperanto, og sagt frá samskiptum hans við erlenda esperantista, ritdeilum um málleysur og alþjóðamál, esperantokennslubókum hans og orðabók sem hann vann að árum saman. Þó er ekki síst fengur að öllu því efni sem Þórbergur ritaði á esperanto, greinum, bréfum, lesköflum og öðru. Margt af þessu birtist hér á íslensku í fyrst sinn í þýðingu Kristjáns Eiríkssonar.

Kristján Eiríksson (f. 1945) er íslenskufræðingur og skrifaði cand.mag.-ritgerð sínar um stíl Þórbergs Þórðarsonar. Kristján kenndi lengi við Menntaskólann að Laugarvatni og fór þar að gefa út La Tradukisto, tímatig á esperanto og íslensku, sem hóf göngu sína á afmælisdegi Þórbergs 12. mars 1989 og var helgað honum. Fyrst var Kristján einn útgefandi en síðar bættust fleiri í ritstjórn. Alls komu út af tímaritinu 60 tölublöð.

Tengdar bækur