Leyndarmálið okkar

Útgefandi: Ugla
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 406 3.490 kr.
spinner

Leyndarmálið okkar

Útgefandi : Ugla

3.490 kr.

Leyndarmálið okkar
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 406 3.490 kr.
spinner

Um bókina

Hver veit hvað gerist bak við luktar dyr – líka á heimilum þar sem allt virðist slétt og fellt á yfirborðinu?

Kvöld eitt kemur félagsmálaráðherrann Anna-Karin Ehn ekki heim úr vinnunni. Daginn eftir finnst bíll hennar yfirgefinn við vegkant rétt fyrir utan bæinn Hagfors. Ummerki í bílnum gefa til kynna að ráðherrann hafi verið fórnarlamb glæps.

Blaðakonan Magdalena Hansson fer strax á stúfana ásamt lögreglumönnunum Petru Wilander og Christer Berglund. Við rannsókn málsins kemur ýmislegt upp á yfirborðið sem legið hefur í þagnargildi. Tengist það hvarfi ráðherrans?

Ninni Schulman starfaði við blaðamennsku áður en hún sló í gegn sem glæpasagnahöfundur í heimalandi sínu, Svíþjóð. Leyndarmálið okkar er þriðja bókin sem kemur út eftir hana á íslensku. Hinar eru Stúlkan með snjóinn í hárinu og Bara þú sem fengu frábærar viðtökur íslenskra lesenda.

Tengdar bækur