Lausnin

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2015 335 3.390 kr.
spinner
Rafbók 2015 990 kr.
spinner

Lausnin

Útgefandi : MM

990 kr.3.390 kr.

Lausnin
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2015 335 3.390 kr.
spinner
Rafbók 2015 990 kr.
spinner

Um bókina

Líður þér illa? Ertu í ástarsorg?
Saknarðu einhvers en veist ekki hvað það er?
Finnst þér eins og allt gæti verið betra?

Ef þú hefur prófað samtalsþerapíu, atferlismeðferð, núvitund, hugleiðslu, jóga, breytt mataræði og pílates en fannst ekki hamingjuna í neinu af því,

KOMDU ÞÁ TIL OKKAR

Lísa er í ástarsorg. Enginn deilir með henni fínu íbúðinni með útsýni yfir höfnina, vinkonurnar eru uppteknar yfir körlum og börnum og kvöldunum eyðir hún ein fyrir framan sjónvarpið. Getur lífið orðið mikið dapurlegra? Þess vegna hugsar hún sig ekki tvisvar um þegar hún rekst á auglýsingu frá Lausninni. Þar er viðskiptavinum lofað hamingju fyrir dágóða fjárhæð, sem öll fæst þó endurgreidd ef meðferðin heppnast ekki. En í hverju felst þessi meðferð?

Eva Magnúsdóttir er ný rödd í íslenskum bókmenntum. Lausnin heldur lesendum í heljargreipum frá fyrstu síðu í taugatrekkjandi leit að hamingjunni.

Tengdar bækur