LEYND

Útgefandi: VH
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2013 224 990 kr.
spinner
Rafbók 2013 490 kr.
spinner

LEYND

Útgefandi : VH

490 kr.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2013 224 990 kr.
spinner
Rafbók 2013 490 kr.
spinner

Um bókina

„Þessi maður! Hvað get ég sagt? Matilda hafði rétt
fyrir sér. Hann var svo djöfull sexí … hann gekk
hægt til mín eins og köttur og ég hörfaði þangað til
ég rak hnésbæturnar í rúmið. Og þá sendi hann mig
ofan í það með því að ýta blíðlega við mér, hann
lyfti pilsinu mínu og aðskildi fótleggina. Ég dró
kodda yfir andlitið þegar hann sagði einu orðin sem
hann sagði þann daginn: Þú ert svo helvíti falleg.
Og svo færði hann mér alsælu sem ég get í rauninni
ekki lýst hérna en ég ætla samt að reyna …“

 

Cassie Robichaud lifir ekki spennandi lífi. Hún vinnur á kaffihúsi og fer síðan heim í litlu íbúðina sína. Karlmann hefur hún ekki haft í lífi sínu eftir að hún varð ekkja fyrir fimm árum og þar á undan var tilveran sannarlega ekki full af ást og gleði. En daginn sem dularfull minnisbók gleymist á kaffihúsinu breytist allt.
Það litla sem Cassie les í bókinni kitlar og hneykslar og kemur henni að lokum í samband við L.E.Y.N.D., leynisamtök í New Orleans sem hjálpa konum að raungera erótískar fantasíur sínar og verða kynferðislega lifandi. Fyrr en varir er Cassie komin af stað í tíu skrefa ferli samtakanna þar sem hver fantasían rekur aðra og hver folinn af öðrum fullnægir öllum hennar þörfum – jafnvel þeim sem hún hafði ekki hugmynd um að hún byggi yfir.
L. Marie Adeline er dulnefni kanadísks metsöluhöfundar.

 

 

Tengdar bækur