Kvíðasnillingarnir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | ||
Rafbók | 2014 | 490 kr. | |||
Kilja | 2014 | 300 | 3.190 kr. |
Kvíðasnillingarnir
490 kr. – 3.190 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | ||
Rafbók | 2014 | 490 kr. | |||
Kilja | 2014 | 300 | 3.190 kr. |
Um bókina
Hversu mikið hnjask þolir eitt strákshjarta?
Í sögu þriggja drengja, sem brátt verða unglingar og fyrr en varir fullorðnir menn, dregur höfundur upp frumlega og sprellfjöruga mynd af hlutskipti karla í samtímanum. Lesandinn flakkar á milli áratuga í huggulegri pappírstímavél; dregur að sér moldardauninn í Hostel Torfbæ, heyrir kjökur og blús á Aumingjahælinu, kastar mæðinni í Griðarstað stráka og kynnist aragrúa eftirminnilegra persóna, þar á meðal fríðum flokki af lævísum draumaprinsessum sem hrista upp í viðkvæmu tilfinningakerfi kvíðasnillinganna þriggja.
Hér kveður sér hljóðs ný rödd í íslensku bókmenntalífi. Kvíðasnillingarnir er fyrsta skáldsaga Sverris Norland og hlaut nýræktarstyrk frá Miðstöð íslenskra bókmennta. Óvenjuleg stílgáfa helst í hendur við gráa íróníu, einlæga samkennd og óþrjótandi hugmyndagleði. Þetta er bók sem á erindi við samtíma sinn, full af hlýju, mannskilningi, gleði og töfrum.
„Líklega mætti súmmera þema bókarinnar upp einhvern veginn svona: Langar okkur ekki öll að vera hamingjusöm, rækta hæfileika okkar, finna ástina, bægja burt kvíðanum og verða heilsteyptar og vandaðar manneskjur? Ég held að bókin fjalli að mestu leyti um slíka drauma og leitina að samastað í tilverunni. Að verða ástfanginn af einhverjum sem fagnar manni eins og maður er og kennir manni að slappa af. Að kynnast því hvernig vinirnir geta svikið mann og hvað það er nauðsynlegt að fyrirgefa þeim og fatta um leið að það er allt í lagi að klúðra stundum málum og láta bara allt fara í steik, þannig er það einfaldlega að vera mennskur. Við erum flest, ef ekki öll, hálfgerðir kvíðasnillingar.“
Sverrir Norland í viðtali við Friðriku Benónýsdóttur
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 19 mínútur að lengd. Einar Aðalsteinsson les.
6 umsagnir um Kvíðasnillingarnir
Bjarni Guðmarsson –
„Mér finnst þetta prýðileg bók … spriklar heilmikið í stílnum.“
Sigurður G. Valgeirsson / Kiljan
Bjarni Guðmarsson –
„Bókin er ágætlega stíluð og höfundur býr yfir hugmyndauðgi – sem er gott veganesti fyrir framtíðina. Hér er kominn höfundur sem á örugglega eftir að skrifa fleiri skáldsögur.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið
Bjarni Guðmarsson –
„Kvíðasnillingar er fyrsta skáldsagan til að sýna íslenskan samtíma í gegnum linsu hins félagslega krúttraunsæis.“
Eiríkur Örn Norðdahl
Bjarni Guðmarsson –
„… frásagnarmátinn hlýr og gráglettinn og smátt og smátt smeygja þessir dálítið sérsinna drengir sér undir húð lesandans, honum fer að þykja vænt um þá, hlær með þeim og grætur og langar helst að ættleiða þá alla … Sverrir er sannarlega verðugur fulltrúi sinnar kynslóðar, hefur skapað sér sinn sérstæða stíl og hefur fullt vald á því formi sem hann velur sögunni … kitlandi kímni og frásagnargleði sem hrífur lesandann með sér.“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið
Bjarni Guðmarsson –
„Kvíðasnillingana vantar ekki athyglisverðar týpur … [Höfundur er] óhræddur við að gera tilraunir á formi og stíl sem vekja áhuga og von um að meira fylgi í kjölfarið … Þegar öllu er á botninn hvolft má segja að höfundi hafi tekist að vekja þennan lesanda til betri vitundar um alvöru og alvöruleysi lífsins með því að spyrja um hvorttveggja og snúa upp á tilvistarspurningarnar gamalkunnugu þannig að þær blasi við á nýjan hátt.“
Gauti Kristmannsson / Víðsjá
Bjarni Guðmarsson –
„… einn helsti styrkur Kvíðasnillinganna er kæruleysislegt en þó vandað textaflæðið, orðmargt og iðulega kröftugt, áleitið og spaugilegt … leiftandi fínir og fjörlegir kaflar, sem segja af ástum og ævintýrum, brasi og samskiptum, jafnt vinanna sem við ættingja, og þó fyrst og við fremst konur. Kvíðasnillingarnir er saga skrifuð af augljósum metnaði og talsverðri íþrótt, svo ljóst er að það má vænta góðra hluta af höfundinum…“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið