Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Kristnihald undir jökli
Útgefandi: VH
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1998 | 1.445 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1998 | 1.445 kr. |
Um bókina
Kristnihald undir Jökli er eitt sérstæðasta listaverkið í sagnaskáldskap Halldórs Laxness. Sagan segir frá Umba, umboðsmanni biskups, sem fer að kanna kristnihald undir Jökli. Þar kynnist hann mörgum forvitnilegum persónum: Jóni Prímusi, dr. Godman Sýngmann, Hnallþóru og Úu – konunni sem tekur hann til sín og breiðir yfir hann vængi sína svo hann gleymir öllu öðru.
Kristnihald undir Jökli hlaut mikið lof gagnrýnenda og lesenda þegar bókin var fyrst gefin út árið 1968. Halldór kemur enn á óvart með ferskum töfrum listar sinnar, persónulegum viðhorfum og ritsnilld sem virðist ekkert ómáttugt. Kristnihaldið hefur bæði verið sett á svið og kvikmyndað.