Jakob forlagasinni og meistari
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1996 | 276 | 990 kr. |
Jakob forlagasinni og meistari
990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1996 | 276 | 990 kr. |
Um bókina
Jakob forlagasinni og meistari hans er líklega þekktasta gamansaga franskra bókmennta frá 18.öld, ásamt Birtingi Voltaires. Sagan kom fyrst út haustið 1796, tólf árum eftir að höfundurinn varð bráðkvaddur yfir gómsætum eftirrétti á hemili sínu í París. Nú eru því liðin tvö hundruð ár frá því sagan birtist.
Hér segir af tveimur fjallhressum mönnum, húsbónda og þjóni, sem fara ríðandi í átta daga ferðalag um Frakkland. Á leiðinni stytta þeir sér stundir við að segja hvor öðrum sögur, þeir hitta skrautlegt fólk sem einnig segir þeim sögur af enn skrautlegra fólki sem líka segir sögur og þannig koll af kolli. Inn í skemmtisögurnar blandar höfundur síðan ýmsum hugleiðingum af heimspekilegum toga, lesanda sínum til fróðleiks og umhugsunar.