Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Inferno
Útgefandi: MM
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | 192 | 2.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | 192 | 2.290 kr. |
Um bókina
Inferno eftir August Strindberg er sjálfsævisögulegt verk og fjallar um rithöfund, búsettan í París, sem yfirgefur fjölskyldu sína til þess að helga sig rannsóknum í efnafræði. Hann er staðráðinn í að komast til botns í leyndardómum gullgerðarlistar og rannsóknirnar leiða hann út í ýmiss konar kukl.
Fyrr en varir renna veruleiki og hugarástand saman; höfundurinn fer að sjá ofsóknir og samsæri gegn sér í hverju horni og upplifir því sannkallað víti – Inferno – innra með sjálfum sér.
Bókin kom upphaflega út á sænsku árið 1897. Þó að hún væri ekki gefin út hér á landi fyrr en heilli öld síðar hefur hún haft veruleg áhrif á íslenska rithöfunda fyrr og síðar, verið þeim fyrirmynd og veitt þeim innblástur.
Þórarinn Eldjárn þýddi.