Í öðru landi – saga úr lífinu

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 249 2.690 kr.
spinner
Geisladiskur 2007 Mp3 1.590 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2018 App 490 kr.
spinner

Í öðru landi – saga úr lífinu

Útgefandi : JPV

490 kr.2.690 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 249 2.690 kr.
spinner
Geisladiskur 2007 Mp3 1.590 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2018 App 490 kr.
spinner

Um bókina

Í öðru landi – Saga úr lífinu (2007) eftir Eddu Andrésdóttur er ljúfsár og lágstemmd frásögn dóttur sem horfir á eftir föður sínum hverfa inn í óminnisland Alzheimers-sjúkdómsins, þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt. Hann lést innan við ári eftir að veikindanna varð fyrst vart.

Dóttirin fylgist vanmáttug með þegar faðir hennar missir smátt og smátt tengslin við tilveruna og tími hans fjarar út og um leið finnst henni hún sjálf stödd í öðru landi. Henni verður hugsað til liðinna tíma og hún fer að rifja upp sögu föður síns og fjölskyldunnar, drauma og veruleika íslenskrar alþýðufjölskyldu á seinni hluta síðustu aldar, tíðaranda og minningarbrot frá liðinni tíð. Lítil atvik vekja upp ljúfan ilm minninganna og þrátt fyrir tregann í frásögninni er húmorinn aldrei langt undan.

Í öðru landi er skrifuð frá hjartanu, bók um erfiða reynslu sem jafnframt vekur alla til umhugsunar um tímann og ellina, tilfinningar og samkennd. Við vitum ekki hvað bíður okkar og kannski verður ellin ekki eins og við höfðum hugsað okkur; þess vegna skiptir máli að nýta þær stundir sem við höfum saman.

Edda Andrésdóttir er kunn fjölmiðla- og sjónvarpskona sem áður hefur sent frá sér tvær viðtalsbækur, Á Gljúfrasteini, bók um Auði Laxness, og Auður Eir: Sólin kemur alltaf upp á ný. Hér slær hún nýjan streng og skrifar afar persónulega bók sem byggist alfarið á hennar eigin reynslu.

ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er um 6 klukkustundir að lengd. Höfundur les.

5 umsagnir um Í öðru landi – saga úr lífinu

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur