Hundalíf… með Theobald

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Mjúk spjöld 2020 183 2.590 kr.
spinner

Hundalíf… með Theobald

Útgefandi : JPV

1.490 kr.2.590 kr.

Hundalíf... með Theobald
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Mjúk spjöld 2020 183 2.590 kr.
spinner

Um bókina

DÝRMÆT AUGNABLIK

Í daglegum gönguferðum sínum ræða ungur hundur og gamall maður saman um lífið og tilveruna. Gamli maðurinn heitir Þráinn og sambýlishundur hans er franski bolabíturinn Theobald. Þetta eru örsögur og örstutt samtöl. Gaman og alvara. Safn lítilla ævintýra um fjölbreytni hversdagsleikans.

− Glás af dýrmætum augnablikum, segir Theobald. Við Theobald vitum ekki frekar en aðrir hvert ferðinni er heitið né hvenær göngunni lýkur og höldum ótrauðir áfram … áleiðis á stefnumót við vindinn, regnið, skýin og það sem á vegi okkar verður. Við erum að safna dýrmætum augnablikum og stundum finnst okkur að við séum moldríkir og langar til að deila ríkidæminu með öðrum.
− Meinarðu með fólki sem ekki nennir sjálft út að labba? segir Theobald.
− Já. Og líka með fólki sem getur hreyft sig og hreyfir sig eins og við
– og svo líka þeim sem ekki geta hreyft sig.
− Það held ég að sé erfitt, segir Theobald.
− Við skulum samt reyna. Dýrmæt augnablik eru auðvitað brothætt en kannski er hægt að vefja þeim inn í góðan pappír og vona að einhver þeirra komist óbrotin til skila …

Tengdar bækur