Hreinsarinn 1: Listinn

Útgefandi: Lindhard
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2021 App 990 kr.
spinner

Hreinsarinn 1: Listinn

Útgefandi : Lindhard

990 kr.

Hreinsarinn 1: Listinn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2021 App 990 kr.
spinner

Um bókina

Bertram og vinir hans, Bjarki, Kasper og Felix, eru nýbúnir með grunnskólann og hafa stofnað klíku sem þeir kalla Krummana. Hylmarinn greiðir þeim fyrir innbrot og þjófnað á dýrum hönnunarhúsgögnum sem hann svo selur völdum viðskiptavinum.

Bertram býr einn með mömmu sinni en hún starfar við framreiðslu á veitingastað. Hún heldur að Bertram vinni sér inn peninga með því að bera út auglýsingar. Bertram man ekki mikið eftir pabba sínum. Hann var ekki nema sjö ára þegar pabbi hans var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir morð.

Dag einn sér Bertram dýran leðurjakka á veitingastaðnum þar sem mamma hans vinnur og stelur honum. Hann rekst á hlut sem er falinn í leynivasa í jakkafóðrinu. Þá hefst atburðarás sem á eftir að hafa skelfilegar afleiðingar, ekki bara fyrir Bertram.

Hreinsarinn er glæpasaga í sex þáttum.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 47 mínútur að lengd. Svavar Jónatansson les.

Tengdar bækur