Hlustaðu á þína innri rödd: Kvennaframboð í Reykjavík og Kvennalisti 1982-1987

Útgefandi: Sögufélag
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2007 294 3.390 kr.
spinner

Hlustaðu á þína innri rödd: Kvennaframboð í Reykjavík og Kvennalisti 1982-1987

Útgefandi : Sögufélag

3.390 kr.

Hlustaðu á þína innri rödd: Kvennaframboð í Reykjavík og Kvennalisti 1982-1987
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2007 294 3.390 kr.
spinner

Um bókina

Sérframboð kvenna í upphafi níunda áratugar síðustu aldar mörkuðu tímamót í íslenskri stjórnmálasögu.

Þau voru afsprengi samfélagslegra breytinga og megnrar óánægju fjölda kvenna sem taldi hin hefðbundnu stjórnmálaöfl hvorki hlusta á konur né vinna að hagsmunum þeirra eða samfélagslegum umbótum.

Í bókinni er fjallað um tilurð Kvennaframboðs í Reykjavík árið 1982 og Kvennalista 1983. Kristín Jónsdóttir skoðar samfélagslegan og fræðilegan bakgrunn framboðanna, ræðir hugmyndafræði og stjórnmálastarf þeirra, viðbrögð við þeim og innri átök. Þótt rannsókn Kristínar nái fyrst og fremst til ársins 1987, þegar Kvennalistinn stóð á hátindi ferils síns, ræðir hún í eftirmála þann hugmyndafræðilega ágreining sem kom upp um 1990 og leiddi að lokum til þess að Kvennalistinn hætti stjórnmálastarfi.

Kristín var sjálf þátttakandi í kvennaframboðunum. Sýn hennar á viðfangsefnið er því í senn persónuleg og fræðileg.

Tengdar bækur