Hamingja

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2021 2.190 kr.
spinner

Hamingja

Útgefandi : JPV

2.190 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2021 2.190 kr.
spinner

Um bókina

Hvað er hamingja? Þegar stórt er spurt er stundum fátt um svör. Margir vilja þó meina að hamingjan felist í hinu hversdagslega og venjubundna í lífinu: rigningunni, vorkomunni, öllu því sem lífið færir okkur. Við getum ákvarðað líðan okkar með því að taka af æðruleysi og þakklæti á móti því sem lífið gefur, því að þegar öllu er á botninn hvolft felst hamingjan kannski í því að vilja það sem maður fær.

Didda Jónsdóttir hefur áður sent frá sér ljóðabókina Lastafans og lausar skrúfur (1995), skáldsöguna Ertu (1997) og hetjusöguna Gullið í höfðinu (1999). Ljóð og greinar eftir Diddu hafa birst í ýmsum tímaritum. Nýverið gaf hún út lagið „Til hvers er ég?“ sem hún flutti ásamt Ryan Carlsson Van Kriedt og var sýnt á RÚV skömmu fyrir söfnunarþátt SÁÁ. Didda samdi textann og söng en áður hefur hún samið texta fyrir ýmsar hljómsveitir. Sá þekktasti er eflaust textinn við lagið „Ó, Reykjavík, ó, Reykjavík“ sem hljómsveitin Vonbrigði flutti. Didda fékk Edduverðlaunin fyrir hlutverk sitt í mynd Sólveigar Anspach, Stormviðri, sem frumsýnd var 2003.

Tengdar bækur