Gunnar Birgisson – ævisaga

Útgefandi: Bjartur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 272 3.390 kr.
spinner
Rafbók 2017 1.490 kr.
spinner

Gunnar Birgisson – ævisaga

Útgefandi : Bjartur

1.490 kr.3.390 kr.

Gunnar Birgisson - ævisaga
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 272 3.390 kr.
spinner
Rafbók 2017 1.490 kr.
spinner

Um bókina

Líf Gunnars Birgissonar hefur ekki verið neinn dans á rósum. Hann ólst upp við lítil efni og var hálfgerður einstæðingur; átti fjölda hálfsystkina og uppeldissystkina en var meira og minna á eigin vegum frá unglingsaldri.

Fljótlega kom í ljós að Gunnar er hamhleypa til verka, hann braust til mennta og þegar hann fann fjölina sína sem verkfræðingur og síðar stjórnmálamaður var fátt sem gat stöðvað hann.

Í þessari hressilegu og einlægu bók segir af skrautlegri fjölskyldusögu Gunnars en líka Dagsbrúnarverkamanninum sem varð umsvifamikill framkvæmdamaður og einn af forystumönnum atvinnurekenda í þjóðarsáttinni, átökum í pólitíkinni þar sem hann dregur ekkert undan og ástinni sem hann fann á ljósum hesti á Hrauni í Ölfusi.

Bráðskemmtileg og fróðleg bók eftir Orra Pál Ormarsson sem sýnir svo ekki verður um villst að það er gott að lesa ævisögu!

Tengdar bækur