Guð hins smáa

Útgefandi: Mál og menning
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2022 App 1.990 kr.
spinner
Kilja 2018 336 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2018 990 kr.
spinner

Guð hins smáa

Útgefandi : Mál og menning

990 kr.3.490 kr.

Guð hins smáa
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2022 App 1.990 kr.
spinner
Kilja 2018 336 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2018 990 kr.
spinner

Um bókina

Í þorpinu Ayemenem á Indlandi búa tvíburarnir Rahel og Estha ásamt móður sinni og sundurleitum hópi ættingja. Þegar frænka tvíburanna kemur með móður sinni í heimsókn frá Englandi komast Rahel og Estha að raun um að allt getur breyst á einni nóttu og að ástinni og lífinu getur lokið á andartaki.

Mörgum árum síðar snýr Rahel aftur á æskuslóðir og hittir Estha bróður sinn eftir langan aðskilnað. Smám saman flettir sagan ofan af leyndarmálum fjölskyldunnar og atburðunum sem ollu straumhvörfum í lífi hennar og settu óafmáanleg spor á örlög fólksins.

Guð hins smáa er listilega samin skáldsaga. Hún er allt í senn – hlý, framandleg, hjartnæm, seiðandi og átakanleg – en ekki síður fyndin. Hún aflaði höfundi sínum heimsfrægðar, varð á undraskömmum tíma metsölubók víða um lönd og hlaut bresku Booker-verðlaunin árið 1997.

Ólöf Eldjárn þýddi.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 12 klukkustundir og 42 mínútur að lengd. Sólveig Arnarsdóttir les.

Tengdar bækur