Gleðiskruddan

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2021 176 5.090 kr.
spinner

Gleðiskruddan

5.090 kr.

Gleðiskruddan
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2021 176 5.090 kr.
spinner

Um bókina

Gleðiskruddan er dagbók fyrir börn á aldrinum 6-15 ára sem byggir á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra. Svokölluð jákvæð inngrip hafa reynst áhrifarík í því að viðhalda hamingju og öðrum jákvæðum tilfinningum ásamt því að minnka einkenni þunglyndis og kvíða.

Dagbókin telur 100 daga þar sem jákvæða inngripið þrír góðir hlutir er í forgrunni. Þar skráir barnið niður þrjá góða hluti sem áttu sér stað þann daginn. Dögunum er skipt upp í 21 þemu; tilfinningar, styrkleika, hamingju, bjargráð við streitu og kvíða, gróskuhugarfar, trú á eigin getu, sjálfstal, sjálfsvinsemd, markmið, seiglu, svefn, hreyfingu, útiveru, núvitund, öndun, að njóta, flæði, þakklæti, góðvild, bjartsýni og von. Hvert og eitt þessara þema er útskýrt á einfaldan hátt til að auðvelda skilning.

Á hverjum degi má einnig finna gleðimola eða gleðifræ dagsins sem tengist þemanu hverju sinni í formi hugleiðinga, tilvitnana, áskorana og æfinga.

Markmið Gleðskruddunnar er að efla sjálfsþekkingu, trú á eigin getu og þrautseigju, ásamt því að auka jákvæðar tilfinningar, bjartsýni og vellíðan.

Tengdar bækur