Gerska ævintýrið

Útgefandi: VH
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 1990 2.090 kr.
spinner

Gerska ævintýrið

Útgefandi : VH

2.090 kr.

Gerska ævintýrið
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 1990 2.090 kr.
spinner

Um bókina

Halldór Laxness skrifaði tvær bækur um heímsóknir sínar til Sovétríkjanna og ferðalög þar á fjórða áratugnum – ógnaröld Stalíns. Sú fyrri kom út árið 1933 og nefnist Í Austurvegi, en hin síðari er hið fræga Gerska ævintýri, sem kom út 1938.

Nafn hennar er reyndar orðið fast í íslensku máli, því ýmsir hafa átt sín „gersku ævintýri”; neitað að trúa eigin augum þegar staðreyndir passa ekki við pólitískar trúarskoðanir. Þótt Gerska ævintýrið sé að hluta til ferðalýsing í hefðbundnum stíl, þá hefur hún þó einkum tvö meginmarkmið.

Annars vegar að lýsa þeim gífurlegu framförum, sem höfundurinn segist hafa orðið vitni að í Sovétríkjunum árið 1938 samanborið við ástandið þar eystra í fyrri heimsókninni um sex árum áður. Hins vegar að lýsa réttarhöldunum gegn Búkharín og öðrum andstæðingum Stalíns innan kommúnistaflokksins og verja þau.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning