Gegnum vötn, gegnum eld

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.490 kr.
spinner
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Kilja 2020 457 3.490 kr.
spinner

Gegnum vötn, gegnum eld

Útgefandi : JPV

1.490 kr.3.490 kr.

Gegnum vötn, gegnum eld
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.490 kr.
spinner
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Kilja 2020 457 3.490 kr.
spinner

Um bókina

Fyrsta sagan í nýjum spennubókaflokki um bráðalækninn Teklu Berg

Tekla er ungur læknir á bráðadeild Nóbelsjúkrahússins í Stokkhólmi. Hún er eldklár og tekst af öryggi á við hverja áskorun í starfinu. En Tekla á sér leyndarmál. Fjölskyldu-saga hennar er eitt flakandi sár og sársaukann þarf hún að deyfa dag hvern. Og hún býr yfir dýrmætum og hættulegum eiginleika: hún gleymir engu sem hún sér.

Þegar stórbruni verður í háhýsi í borginni bjargar Tekla lífi manns sem enginn veit hver er. Grunsemdir vakna um hryðjuverk og lögreglan vaktar sjúklinginn sem liggur rænulaus og skaðbrunninn á spítalanum. Er hann sprengivargur eða saklaust fórnarlamb – jafnvel maður sem Tekla þekkir mætavel og myndi fórna öllu fyrir?

Gegnum vötn, gegnum eld er geysivel fléttuð spennusaga um grimma undirheima, spillta yfirstétt og baráttu um auð og völd – en líka um böndin sem binda fólk saman til góðs og ills.

Höfundurinn, Christian Unge, er yfirlæknir í Stokkhólmi og hefur starfað fyrir Lækna án landamæra. Hann nýtir reynslu sína og þekkingu vel í bókunum um Teklu.

Hilmar Hilmarsson þýddi.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 11 klukkustundir og 57 mínútur að lengd. Esther Talía Casey les.

3 umsagnir um Gegnum vötn, gegnum eld

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur