Fjórar systur – Saga rússnesku keisaradætranna

Útgefandi: Ugla
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 535 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2021 3.890 kr.
spinner

Fjórar systur – Saga rússnesku keisaradætranna

Útgefandi : Ugla

3.490 kr.3.890 kr.

Fjórar systur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 535 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2021 3.890 kr.
spinner

Um bókina

Hinn 17. júlí 1918 gengu fjórar ungar konur niður tuttugu og þrjú kjallarþrep húss í Jekaterinburg í Úralfjöllunum í Rússlandi. Sú elsta var tuttugu og tveggja ára, sú yngsta sautján ára. Ásamt foreldrum sínum og þrettán ára bróður voru þær allar teknar af lífi með hrottafengnum hætti. Hver var glæpur þeirra? Þær voru dætur síðasta keisara Rússlands.

Í þessari margrómuðu bók enska sagnfræðingsins Helen Rappaport er brugðið upp lifandi myndum af stuttri ævi rússnesku keisaradætranna, Olgu, Tatjönu, Maríu og Anastasíu. Rúmri öld eftir andlát sitt fá þær loks rödd – með innsýn í dagbækur þeirra og einkabréf.

Bókin lýsir þroskasögu systranna allt frá barnæsku uns þær voru orðnar ungar konur með vonir og þrár. Við kynnumst líka fjölskyldu þeirra, móður sem glímdi við langvarandi veikindi, bróður sem þjáðist af dreyrasýki og áhrifum furðumannsins Raspútíns.

Tengdar bækur