Ferðaatlas 1:200 000 – 2016
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2016 | 208 | 4.990 kr. |
Ferðaatlas 1:200 000 – 2016
4.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2016 | 208 | 4.990 kr. |
Um bókina
Ferðaatlas Máls og menningar er sniðinn að þörfum fróðleiksfúsra ferðamanna.
Atlasinn inniheldur 78 ný kort í mælikvarðanum 1:200 000, gerð af kortagerðarmanninum Hans H. Hansen sem unnið hefur til fjölda alþjóðlegra verðlauna. Með nýjustu kortatækni eru svipbrigði landsins sýnd með ótrúlegri nákvæmni svo hvert mannsbarn skynjar hæð fjalla, dýpt dala og víðáttur öræfanna líkt og flogið væri yfir. Á kortunum eru 26.600 örnefni sem vísað er til í ítarlegri nafnaskrá.
Í atlasinum eru einnig nákvæm götukort af höfuðborgarsvæðinu og 38 öðrum þéttbýlisstöðum, auk upplýsinga um sundlaugar, tjaldsvæði, söfn, golfvelli og fuglaskoðunarstaði.
Meðal helstu nýjunga í Ferðaatlasinum eru upplýsingar um 104 náttúruperlur og sögustaði landsins, sem ásamt einstökum teikningum Jóns Baldurs Hlíðberg af varpfuglum, plöntum og skeljum, gera ferðalagið um Ísland ógleymanlegt.