Ekki vera sár
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 212 | 3.990 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 212 | 3.990 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.490 kr. |
Um bókina
Allt sitt líf hefur Imba verið á þönum en nú er hún komin á eftirlaun, frí og frjáls. Börnin eru flogin, skyldurnar að baki og nýtt æviskeið fram undan. Loksins gefst tími til að láta draumana rætast. En eiginmaðurinn á líka sína drauma, kannski ekki þá sömu og hún . . .
Ekki vera sár er uppgjör konu á krossgötum. Með eftirsjá hugsar hún um árin sem liðu hjá og tækifærin sem hún greip ekki – en skyldi hún vera reiðubúin að standa á sínu núna? Getur hugsast að ný tækifæri bíði handan við hornið?
Kristín Steinsdóttir er margrómuð og verðlaunuð sagnakona og hefur skrifað á fjórða tug bóka. Skáldsögur hennar hafa hlotið mikið lof heima og erlendis.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um 5 klukkustundir að lengd. Höfundur les.
4 umsagnir um Ekki vera sár
Árni Þór –
„Orðin leika í höndum jafn færs penna og Kristín er er … Þótt það ætti auðvitað að vera sjálfsagt er samt alltaf jafn þakklátt og hressandi þegar eldra fólk er leitt fram í sviðsljósið sem raunverulegar manneskjur með skoðanir, tilfinningar, þrár og þarfir … Þetta er ljúfsár en skemmtileg saga sem mun gleðja marga.“
Maríanna Clara Lúthersdóttir / Morgunblaðið
Árni Þór –
„Það er alltaf ánægjulegt að lesa bækur Kristínar Steinsdóttur og hér fjallar hún um árin sem margir bæði hlakka til og kvíða.“
Ragnhildur Erla Bjarnadóttir / Lifðu núna
Árni Þór –
„Ljúfasta saga og vel þess virði að lesa um konu sem loksins, loksins fer að hugsa um sjálfa sig.“
Helga Birgisdóttir / Fréttablaðið
Árni Þór –
„Ekki vera sár er trúverðug og mannleg frásögn af manneskju á krossgötum sem stendur frammi fyrir því að endurskoða lífshlaup sitt á lokametrunum sem þó marka nýtt upphaf.“
Kolbeinn Þorsteinsson / DV