Ekki líta undan – saga Guðrúnar Ebbu dóttur Ólafs Skúlasonar biskups
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 253 | 3.100 kr. | ||
Geisladiskur | 2011 | Mp3 | 1.090 kr. |
Ekki líta undan – saga Guðrúnar Ebbu dóttur Ólafs Skúlasonar biskups
1.090 kr. – 3.100 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 253 | 3.100 kr. | ||
Geisladiskur | 2011 | Mp3 | 1.090 kr. |
Um bókina
… Fólk hefur spurt mig hvers vegna ég segi frá. Það spyr af hverju ég sé að sverta minningu látins manns. Oft megi satt kyrrt liggja. Ég lít svo á að ég beri ábyrgð á því að uppgjör þessa máls fari fram og tel að það muni leiða tilgóðs. Ekki bara fyrir mig, fjölskyldu mína og kirkjuna heldur er það líka einlæg von mín að meiri vitneskja um kynferðisofbeldi geti bjargað börnum frá því að lenda í klóm kynferðisbrotamanna.
Ekki líta undan er saga Guðrúnar Ebbu, dóttur Ólafs Skúlasonar biskups. Þessi einstæða bók fjallar um afleiðingarnar af því þegar satt er látið kyrrt liggja og nauðsyn þess að horfast í augu við hið liðna, hversu sárt og erfitt sem það kann að vera.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir er dóttir Ólafs Skúlasonar biskups sem var einn af helstu valdamönnum samfélagsins en hrökklaðist úr embætti eftir ásakanir um kynferðislega áreitni – sem hann neitaði alla tíð.
Guðrún Ebba segir frá af hispursleysi og viðurkennir veikleika sína, skoðar líf sitt og hegðun í stóra samhenginu, hvernig kynferðisofbeldi sem faðir hennar beitti hana í æsku hefur litað allt hennar líf. Hún segir frá því hvernig hún deyfði sig með margvíslegum óhollum aðferðum en líka hvernig hún tókst að lokum á við lífsvanda sinn og hefur í framhaldinu knúið kirkjunnar menn til að horfast í augu við sinn vanda þegar slík mál eru annars vegar – hætta að líta undan.
Elín Hirst skráir.
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.
5 umsagnir um Ekki líta undan – saga Guðrúnar Ebbu dóttur Ólafs Skúlasonar biskups
Elín Edda Pálsdóttir –
„Átakanleg og sérlega vel unnin reynslusaga um það hvernig ofbeldi getur mótað líf manneskjunnar á öllum sviðum.“
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir / Fréttablaðið
Elín Edda Pálsdóttir –
„Frásögn Guðrúnar Ebbu er einlæg, heiðarleg og lærdómsrík. Hún greinir frá ofbeldinu sem faðir hennar beitti hana á hispurslausan hátt og reynir hvergi að fegra eigin hlut … Bókin er öll vel úr garði gerð, texti Elínar Hirst er lipur og læsilegur og verður hvergi leiðinlegur, þótt hér sé fráleitt fjallað um gamanmál.“
Jón Þ. Þór / DV
Elín Edda Pálsdóttir –
Elín Hirst skráir bókina með Guðrúnu Ebbu og tekst það bara mæta vel … Hún fer mjög skilmerkilega og af mikilli hreinskilni í gegnum það hvernig líf hennar rústast (…) og hvað það hefur alvarlegar afleiðingar fyrir hana á mörgum sviðum. Það er greinilegt að hún er búin að ganga í gegnum mjög djúpa og erfiða sjálfskoðun á öllu sínu lífi.
Páll Baldvin Baldvinsson / Kiljan
Elín Edda Pálsdóttir –
„Það er ráðgáta hvernig maður sem er svona siðvilltur (…) tekst að verða biskup yfir íslensku kirkjunni. Stórkostleg ráðgáta …. Bókin kemur inn í þessar deilur hjá kirkjunni og er eins og sprengiefni.”
Egill Helgason / Kiljan
Elín Edda Pálsdóttir –
„Þessi bók hlýtur að hafa áhrif á alla sem lesa hana … Bókinni er greinilega ætlað að hjálpa í seinni hlutanum (…) erindið þar er mikið … Þetta er gert smekklega.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan