Ein á forsetavakt

Útgefandi: Iðunn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.290 kr.
spinner
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Mjúk spjöld 2020 188 2.590 kr.
spinner

Ein á forsetavakt

Útgefandi : Iðunn

1.290 kr.2.590 kr.

Ein á forsetavakt
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.290 kr.
spinner
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Mjúk spjöld 2020 188 2.590 kr.
spinner

Um bókina

Þegar Vigdís Finnbogadóttir varð forseti Íslands árið 1980 hafði engin kona áður verið lýðræðislega kjörin í embætti þjóðhöfðingja – hvergi um víða veröld. Ekki nóg með það, heldur þótti afar sérstakt að ógift kona og einstæð móðir gegndi slíku embætti.

Ein á forsetavakt eftir Steinunni Sigurðardóttur kom fyrst út haustið 1988 og vakti geysimikla athygli, enda fengu landsmenn þar í fyrsta sinn innsýn í dagleg störf forsetans.

Í bókinni lýsir Steinunn af einstöku innsæi sjö dögum í lífi Vigdísar: ferðalögum utanlands og innan, gestaboðum og samkomum, skrifstofustússi, uppeldi og stopulum frístundum. Um leið er skyggnst undir yfirborðið og Vigdís viðrar hugleiðingar sínar um hlutverk þjóðhöfðingjans og þau fjölbreyttu verkefni sem því fylgja.

Bókin er nú endurútgefin, lítillega endurskoðuð og með nýjum formála og eftirmála höfundar, í tilefni þess að 90 ár eru liðin frá fæðingu Vigdísar og 40 ár frá því að hún var kjörin forseti Íslands.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 4 klukkustundir og 51 mínútur að lengd. Höfundur les.

Tengdar bækur