Brautryðjendur fyrir vestan
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 112 | 890 kr. |
Brautryðjendur fyrir vestan
890 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 112 | 890 kr. |
Um bókina
Þessi bók er út gefin til heiðurs vestfirskum vegavinnumönnum: Verkstjórunum, ráðskonunum, vinnukonunum, tippurunum, hefilsstjórunum, gröfumönnunum, bílstjórunum, jarðýtustjórunum, snidduhleðslumönnunum og öllum öðrum sem lögðu hönd á plóg. Þar á meðal hinum mörgu strákum sem byrjuðu sinn feril í vegavinnunni. Vegfarendur koma einnig nokkuð við sögu við ýmsar aðstæður.
Engu er líkara en fjöldi vestfirskra vega hafi verið greyptir í landið þegar landnámsmenn komu. Svo inngrónir eru þeir landslaginu i dag. Vestfirskir vegir voru almennt snilldarlega lagðir og bera höfundum sínum gott vitni. Og hafa komið Vestfirðingum að ótrúlega góðum notum. Hvernig hefðu Vestfirðir verið án vega? Óbyggilegir. Þarf ekki annað en líta til Hornstranda í þeim efnum.