Blóðhefnd

Útgefandi: Drápa
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2019 384 3.490 kr.
spinner

Blóðhefnd

Útgefandi : Drápa

3.490 kr.

Blóðhefnd - Angela Marsons
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2019 384 3.490 kr.
spinner

Um bókina

Þegar kona er myrt með einni einustu, hárnákvæmri hnífstungu virðist það í fyrstu vera rán sem hefur farið úrskeiðis; virtur og góðhjartaður félagsráðgjafi sem orðið hefur fórnarlamb handahófskennds ofbeldisglæps. Í augum Kim Stone, rannsóknarlögreglufulltrúa, er þó eitthvað sem ekki gengur upp.

Þegar eiturlyfjaneytandi í nágrenninu finnst myrt með sams konar sár segir eðlisávísunin Kim að um sama morðingja sé að ræða. Þar sem engin tengsl finnast milli fórnarlambanna, önnur en kalt og útspekúlerað ofbeldið, gæti þetta orðið hennar erfiðasta mál til þessa.

Kim á erfitt með að einbeita sér að eltingarleiknum við morðingjann þegar henni berst hrollvekjandi bréf frá doktor Alex Thorne, félagsblindingjanum sem hún kom á bak við lás og slá. Í þetta sinn reiðir Alex til höggs þar sem Kim er veikust fyrir og neyðir hana til fundar við konuna sem drap litla bróður Kim – móður hennar.

Þegar líkunum fjölgar fletta Kim og lið hennar ofan af hroðalegum leyndarmálum og færast sífellt nær morðingjanum. Eitt þeirra gæti þó verið í mikilli
hættu og í þetta sinn er ekki víst að Kim takist að bjarga málunum …

Hörkuspennandi glæpasaga sem ómögulegt er að láta frá sér fyrr en eftir að hin óvæntu endalok eru komin í ljós.

Þýðing: Ingunn Snædal.

Tengdar bækur