Blekkingaleikur

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Kilja 2020 432 3.490 kr.
spinner

Blekkingaleikur

Útgefandi : JPV

1.490 kr.3.490 kr.

Blekkingaleikur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Kilja 2020 432 3.490 kr.
spinner

Um bókina

Martin Benner lögmaður býr í Stokkhólmi og gengur flest í haginn. Hann hefur brennandi áhuga á fornmunum og þegar Henry vinur hans deyr býðst honum að kaupa hans hlut í antíkverslun í New York. Martin slær til en þá er eins og gæfan snúi við honum baki. Fyrst heyrir hann að Henry hafi verið myrtur. Síðan fara óþægilegir atburðir að gerast í kringum hann; fótspor í garðinum, einhver fylgist með honum, hann fær í hendur forngripi sem virðast notaðir til að senda leynileg skilaboð – og loks fer fólk að hverfa.

Fortíð Henrys er greinilega flóknari og myrkar en Martin grunaði og við sögu kemur dularfullur félagsskapur sem aðstoðar menn sem hafa verið sakaðir um barnaníð. Eða er markmið hópsins kannski allt annað? Þegar Martin fær svo senda minningargrein um sjálfan sig, með þeim orðum að hún verði birt innan sjö daga, verðu honum ljóst að leyndin og blekkingarnar eru ísköld dauðans alvara.

Kristina Ohlsson er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur Svía og margar bækur hennar hafa verið þýddar á íslensku. Blekkingaleikur er þriðja sagan um lögfræðinginn Martin Benner.

Nanna B. Þórsdóttir þýddi.

3 umsagnir um Blekkingaleikur

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur