Beðið eftir barbörunum

Útgefandi: Una
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2020 272 3.190 kr.
spinner

Beðið eftir barbörunum

Útgefandi : Una

3.190 kr.

Beðið eftir barbörunum
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2020 272 3.190 kr.
spinner

Um bókina

Sígilt samtímaverk eftir Nóbelskáldið J. M. Coetzee.

Í áratugi hefur dómari stjórnað rólegum bæ á mærum heimsveldis. Þegar orðrómur berst um barbara handan bæjarmúranna taka fulltrúar heimsveldisins völdin. Í kjölfarið gerist dómarinn gagnrýninn á alræði þeirra og ofbeldi, en þarf samhliða að horfast í augu við eigin takmörk, fýsnir og siðferði. Beðið eftir barbörunum er tímalaust meistaraverk og ein merkasta skáldsaga síðari hluta 20. aldar.

J. M. Coetzee (f. 1940) er margverðlaunaður rithöfundur frá Suður-Afríku. Beðið eftir barbörunum er eitt þekktast verk hans. Sagan er áleitin gagnrýni á nýlenduveldi og aðskilnaðarstefnu líkt og fjallað er um í eftirmála.

Sigurlína Davíðsdóttir og Rúnar Helgi Vignisson þýddu.

Tengdar bækur