Andstæður

Útgefandi: Draumsýn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 230 90 kr.
spinner

Andstæður

Útgefandi : Draumsýn

90 kr.

Andstæður
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 230 90 kr.
spinner

Um bókina

Andstæður er spennandi og áhrifamikil samtímasaga byggð á raunverulegum heimildum og gefur sterka sýn inn í harðan heim vændis og fíkniefna.

Líf Rebekku er fullkomið. Hún er gift æskuástinni sinni, Gunnari, þau búa í fallegum smábæ í Belgíu og hún er í draumastarfinu. Rebekka vinnur að nýrri bók um efni sem er henni hugleikið; lögleiðing vændis. Hana skortir innblástur enda er ekki auðvelt að setja sig inn í veruleika sem er svo andstæður hennar eigin.

En ekki er allt sem sýnist. Undir niðri kraumar óheiðarleiki sem smám saman grefur sig upp á yfirborðið og hið sanna kemur í ljós. Vonlaus staða Rebekku verður til þess að hún hittir vændiskonuna Jasmijn fyir hreina tilviljun. Jasmijn er mikilvæg uppspretta heimilda fyrir Rebekku en frásögn hennar opnar dyr inn í heim sem erfitt er að trúa að sé til.

Andstæður er önnur bók Guðrúnar. Fyrsta bókin Hann kallar á mig kom út jólin 2015 og fékk mjög góðar viðtökur lesenda. Í bókum sínum fjallar Guðrún á opinskáan háttum dökkar hliðar samfélagsins. Hún leitast eftir að hreyfa við lesandanum og vekja hann þannig til umhugsunar.

1 umsögn um Andstæður

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur