Afturgangan: Harry Hole #9
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2015 | 518 | 2.790 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 490 kr. |
Afturgangan: Harry Hole #9
490 kr. – 2.790 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2015 | 518 | 2.790 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 490 kr. |
Um bókina
Þegar Harry Hole flytur til Hong Kong telur hann sig lausan við byrðar fortíðarinnar fyrir fullt og allt. En þá fær hann fregnir af því að Oleg, sonur fyrrverandi unnustu hans, hafi verið handtekinn, sakaður um morð. Harry neitar að trúa að Oleg sé sekur og snýr aftur heim til Noregs.
Hann dregst þegar inn í miskunnarlausa undirheima Oslóarborgar, þar sem nýtt og háskalegt eiturlyf er komið í umferð. Lögreglan vill ekki hleypa Harry nálægt rannsókn málsins en þegar honum tekst að lauma sér inn í fangelsið og ná tali af Oleg sannfærist hann um að morðið tengist fíkniefnaheiminum og nýja efninu.
Hann neyðist til að takast á við eigin fortíð og horfast í augu við sannleikann um Oleg og sjálfan sig.
Bækur Jo Nesbø um rannsóknarlögreglumanninn Harry Hole hafa farið sigurför um heiminn og komið út í fjölda landa.
Bjarni Gunnarsson þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 19 klukkustundir og 33 mínútur að lengd. Orri Huginn Ágústsson les.
7 umsagnir um Afturgangan: Harry Hole #9
Elín Edda Pálsdóttir –
„Þeim sem ætluðu að taka það rólega í kjölfar jóla og áramóta er ráðlagt að halda sig víðs fjarri þessari frábæru spennubók … Uppbygging sögunnar er vel gerð og spennan mikil … Afturgangan er frábær spennubók!“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið
Elín Edda Pálsdóttir –
„Hröð og flókin atburðarás gerir Afturgönguna . . . að ávanabindandi spennutrylli.“
Los Angeles Times
Elín Edda Pálsdóttir –
„Harry Hole snýr aftur í einni bestu glæpasögu samtímans . . . [Nesbø er] besti fléttu- og spennusmiður Norðurlanda.“
Politiken
Elín Edda Pálsdóttir –
„Besta skáldsaga Nesbø.“
Evening Standard
Elín Edda Pálsdóttir –
„Þetta er frábær bók, eins og við mátti búast … hrikalega spennandi og óvænt.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan
Elín Edda Pálsdóttir –
„Drulluspennandi … rænir þig svefni.“
Egill Helgason / Kiljan
Elín Edda Pálsdóttir –
„Rauk beint í fyrsta sæti á metsölulistum – ég er ekki hissa á því. Jo Nesbø stendur uppúr … Snillingur á sínu sviði.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan