Ævintýri frá miðöldum

Útgefandi: Skrudda
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2016 2 bindi 10.990 kr.
spinner

Ævintýri frá miðöldum

Útgefandi : Skrudda

10.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2016 2 bindi 10.990 kr.
spinner

Um bókina

Heildarútgáfa ævintýra frá miðöldum markar tímamót því að slíkt verk hefur ekki áður komið út. Í fyrsta sinn geta nútímalesendur kynnst þessari vinsælu bókmenntagrein miðalda í aðgengilegri lestrarútgáfu með nútímastafsetningu.

Ævintýrin, sem eins má kalla dæmisögur (exempla), voru samin í Evrópu á latínu á 12., 13. og 14. öld og höfðu um langan aldur mikil og varanleg áhrif á bókmenntir Evrópuþjóða, þar á meðal á Íslendingasögur og fleiri bókmenntagreinar. Sum þessara ævintýra öðluðust síðan framhaldslíf í þjóðsögum síðari alda.

Í safninu eru 146 ævintýri sem þýdd voru á miðöldum úr latínu og miðensku á 13., 14. og 15. öld. Með þeim opnaðist Íslendingum sagnasjóður sem iðulega má rekja langt aftur í aldir til klassískrar fornaldar Grikkja og Rómverja, Persa, Indverja og Araba.

Útgáfan er með fræðilegum inngangi og fjallað er um uppruna ævintýranna í athugasemdum á eftir hverju þeirra. Neðanmáls eru m.a. biblíutilvísanir, orðskýringar, stuttar menningarsögulegar skýringar og lesbrigði handrita.

Bragi Halldórsson sá um útgáfuna og Hrefna Bragadóttir myndskreytti.

Tengdar bækur